Renín
Teknetín | |||||||||||||||||||||||||
Volfram | Renín | Osmín | |||||||||||||||||||||||
Bohrín | |||||||||||||||||||||||||
|
Renín er frumefni með efnatáknið Re og sætistöluna 75 í lotukerfinu. Þetta er silfurhvítur, sjaldgæfur, þungur og fjölgildur hliðarmálmur sem efnafræðilega líkist mangani og er notaður í sumar málmblöndur. Renín fæst sem aukaafurð við hreinsun mólýbdens. Það var síðasta náttúrulega frumefnið sem uppgötvað var og er í hópi tíu dýrustu málma á Jörðinni.
Almennir eiginleikar
[breyta | breyta frumkóða]Renín er silfurhvítur málmur með mikinn gljáa og hefur eitt hæsta bræðslumark allra frumefna, á eftir volfram og kolefni. Það er einnig með mesta eðlismassann, á eftir platínu, iridíni og osmíni. Oxunarstig reníns má telja, -1, +1, +2, +3, +4, +5, +6 og +7. Oxunarstig +7, +6, +4, +2 og -1 eru þó algengust.
Það er yfirleitt keypt í formi dufts, en hægt er að þétta það í fast form með því að valsa og sindra það í lofttæmi eða í vetnisandrúmslofti. Þegar renín hefur verið hert er það sveigjanlegt og er þá hægt að beygja það, vefja það í vafninga, eða valsa það. Renín-mólýbden málmblöndur eru ofurleiðandi við 10 K.
Notkun
[breyta | breyta frumkóða]Þetta frumefni er notað í platínu-renín hvata sem aðallega eru notaðir við framleiðslu á blýlausu, háoktana bensíni og í háhitaþolnar ofurmálmblöndur sem notaðar eru í þotuhreyfla.
Önnur not:
- Mikið notað í glóðarþræði í atómmassamælaum og í jónunarmælum.
- Bætiefni í volfram- og mólybdenmálmblöndur til að ljá þeim nytsamlega eiginleika.
- Renínhvatar eru mjög þolnir gagnvart efnaeitrun og eru þess vegna notaðir í sumar tegundir af vetnistengingarferlum.
- Efni í snertur sökum góðs slitþols og þess eiginleika að standast ljósbogatæringu.
- Tvinn sem innihalda blöndu af reníni og volfram eru notuð til að mæla hitastig upp að 2200 °C.
- Renínvírar eru notaðir í leifturljós í ljósmyndun.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Renín (Latína Rhenus sem að þýðir „Rín“) var síðasta náttúrulega frumefnið sem uppgötvað var. Henry Moseley spáði fyrir um tilvist áður óuppgötvaðs frumefnis í þessari stöðu í lotukerfinu árið 1914. Yfirleitt er talið Walter Noddack, Ida Tacke og Otto Berg hafi uppgötvað það í Þýskalandi. Árið 1925 tilkynntu þau að þau hefðu fundið frumefnið í platínugrýti og í kólumbíti. Þau fundu einnig renín í gadoliníti og mólýbdenglans. Árið 1928 náðu þau að vinna eitt gramm af frumefninu með því að vinna 660 kg af mólýbdenglans.
Þetta ferli var svo flókið og dýrt í rekstri að framleiðslu var hætt þangað til snemma árið 1950 að volfram-renín og mólýbden-renín málmblöndur voru búnar til. Mikilvæg not fundust fyrir þessar málmblöndur í iðnaði þannig að eftirspurn eftir reníni unnu úr mólýbdenglanshluta dílótts koparbergs jókst gífurlega.
Tilvist
[breyta | breyta frumkóða]Úti í náttúrunni finnst renín hvorki í frjálsu formi né sem efnasamband í aðgreindum steintegundum. Það er á víð og dreif í jarðskorpunni í hlutfallinu 0,001 miljónarhluta. Renín er unnið úr mólýbden reykrörsdufti úr koparsúlfíðgrýti. Sumt mólýbdengrýti hefur að geyma á milli 0,002% til 0,2% renín. Málmform reníns er framleitt með því að rýra ammoníumperrenat með vetni við hátt hitastig.
Samsætur
[breyta | breyta frumkóða]Náttúrulegt renín er blanda af einni stöðugri samsætu og einni geislavirkri samsætu með mjög langan helmingunartíma. Þekktar eru 26 aðrar óstöðugar samsætur.
Varúðarráðstafanir
[breyta | breyta frumkóða]Lítið er vitað um eituráhrif reníns og skyldi því meðhöndla það varlega.