Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Er hægt að finna ástina án þess að týna sjálfum sér? Lexia Vikander er textahöfundur á auglýsingastofu. Hún er ekki ánægð í vinnunni. Henni finnst hún heldur ekki eiga heima meðal tággrannra kvenna í auglýsingageiranum sem telja kalóríur í hvert mál. Nýr eigandi hefur tekið við fyrirtækinu og það er altalað að mörgum verði sagt upp. Til að hressa sig við bregður Lexia sér á bar og hellir í sig alltof mörgum bleikum drykkjum. Allt í einu sest við hliðina á henni myndarlegasti maður sem hún hefur séð! Adam Nylund er maður sem hefur unnið sig upp af eigin rammleik og þykir harður í horn að taka. Hann vill helst einbeita sér að vinnunni en konan við hliðina á honum á barnum vekur áhuga hans. Að minnsta kosti þangað til hún snýr sér að honum drukkin, kyssir hann og kastar upp yfir skóna hans. Á mánudagsmorgun hittast þau aftur, Lexia og nýi yfirmaður hennar – Adam. Bráðfjörug og spennandi ástarsaga um líf nútímakvenna, heitar ástríður og fáránlegar líkamsímyndir. Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt sló rækilega í gegn með Teflt á tvær hættur-seríunni (Aðeins ein nótt, Aðeins eitt leyndarmál og Aðeins ein áhætta). Allt eða ekkert er fyrsta bókin í nýrri seríu sem kallast: Seiðmagn andstæðnanna. „Meistari kvennabókmenntanna í Svíþjóð, Simona Ahrnstedt, er frábær rithöfundur.“ – Dagens Nyheter „Áhugaverð, vel skrifuð og æsandi.“ – Dala-Demokraten „Það er sannkölluð listgrein að stilla saman strengi skemmtunar og þjóðfélagsgagnrýni eins og Simona Ahrnstedt gerir.“ – Sydsvenskan
© 2022 Ugla útgáfa (Hljóðbók): 9789935217196
© 2022 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935215895
Þýðandi: Friðrika Benónýsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 27 april 2022
Rafbók: 30 april 2022

Heildareinkunn af 842 stjörnugjöfum
Hjartahlý
Notaleg
Rómantísk
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 842
Bergljot
13 juni 2022
Bókin er goð afþreying og gott að lesa sögu þar sem allt fer vé inn á milli. En kynlífs lýsingar þreytandi. Það er óþarfi að lýsa þeim og onauðslegt Fj...kornið lesendur hafa hugarflug og að lesa á milli lína er kostur góðra boka!
eva jóna
30 apr. 2022
Dásamleg 💛
Hlíf
5 maj 2022
Entist bara fyrstu 3 kaflana. Misheppnaða gellan hittir myndarlega manninn, gerir sig að fífli og hann reynist svo vera nýi fúli yfirmaðurinn. Hvað hafiði lesið þessa sögu oft eða séð myndina? Kannski endar þessi saga ekki á brúðkaupi en ég gat ekki þessa byrjun enn og aftur.
Margrét
9 maj 2022
Elta rómantísk saga og lesturinn frábær
Erna
25 maj 2022
Halltu mér slepptu mér. Allt of mikið að endurtekningum og ástarleikjasenurna voru þreytandi og svo margar síður 😴
Rannveig
29 nov. 2022
Mjööög langdregin
Unnur
22 nov. 2023
Langdreginn, gafst upp þegar seig á seinni hlutann
Asdis
11 mars 2023
Heldur mikið af kynlífs upplýsingum
Þórunn
26 maj 2022
Lengi að komast af stað en það borgar sig ekki að byrja á endinum.Líkamsvirðing er þörf umræða.
Lilja Hafdís
5 maj 2022
Engin myrtur samt er þessi bók frábær og lesturinn líka 🫶🏼
Íslenska
Ísland