Fara í innihald

Flugan (stjörnumerki)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 12. apríl 2023 kl. 10:44 eftir Akigka (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. apríl 2023 kl. 10:44 eftir Akigka (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|right|Stjörnukort af Flugunni. '''Flugan''' (latína: ''Musca'') er lítið stjörnumerki á suðurhimni. Hún er eitt af 12 stjörnumerkjum sem Petrus Plancius skilgreindi eftir athuganir Pieter Dirkszoon Keyser og Frederick de Houtman og kom fyrst út á stjörnukorti árið 1597. Björtustu stjörnur stjörnumerkisins eru hlutar af Sco-Cen-stjörnufélaginu sem er það stjörnuf...)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stjörnukort af Flugunni.

Flugan (latína: Musca) er lítið stjörnumerki á suðurhimni. Hún er eitt af 12 stjörnumerkjum sem Petrus Plancius skilgreindi eftir athuganir Pieter Dirkszoon Keyser og Frederick de Houtman og kom fyrst út á stjörnukorti árið 1597.

Björtustu stjörnur stjörnumerkisins eru hlutar af Sco-Cen-stjörnufélaginu sem er það stjörnufélag sem er næst sólu. Þetta er hópur bláhvítra stjarna sem virðast eiga sér sama uppruna og eru á sömu ferð um Vetrarbrautina. Bjartasta stjarnan er Alfa Muscae í miðju stjörnumerkinu í um 315 ljósára fjarlægð frá jörð.