Fara í innihald

Forþjappa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Forþjappa (oft ranglega nefnd túrbína) kallast sá hluti eldsneytis-knúinnar vélar sem þjappar inntakslofti inn í brunahol vélarinnar. Er þetta gert til að auka afl og nýtni vélarinnar, án mikillar þungaaukningar. Sumar forþjöppur hafa millikæli (Intercooler) sem kælir loftið áður en það fer inn í sprengirými. Við þetta eykst eðlisþyngd loftsins og það þjappast betur sem leiðir til aflaukningar.

Forþjappan er knúin áfram af útblæstri vélarinnar.