Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Dómsmálaráðherra Íslands | |||||||
Núverandi | |||||||
Tók við embætti 19. júní 2023 | |||||||
Forsætisráðherra | Katrín Jakobsdóttir Bjarni Benediktsson | ||||||
Forveri | Jón Gunnarsson | ||||||
Alþingismaður | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fædd | 9. febrúar 1970 Selfoss | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Sjálfstæðisflokkurinn | ||||||
Maki | Hans Kristján Einarsson Hagerup | ||||||
Menntun | Mannfræði | ||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Guðrún Hafsteinsdóttir (f. 9. febrúar 1970) er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og núverandi dómsmálaráðherra. Áður var hún markaðsstjóri Kjörís og formaður Samtaka iðnaðarins. Hún sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi árið 2021 og leiddi lista flokksins í kjördæminu í alþingiskosningunum í september 2021.
Foreldrar Guðrúnar eru Hafsteinn Kristinsson (1933-1993) forstjóri og stofnandi Kjörís og Laufey Valdimarsdóttir (f. 1940). Guðrún er næstyngst fjögurra systkina og meðal systkina hennar er Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði til 16 ára og núverandi sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. Maki Guðrúnar er Hans Kristján Einarsson Hagerup gullsmiður og eiga þau samtals sex börn.[1]
Guðrún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, BA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands og diplómagráðu í jafnréttisfræðum frá Háskóla Íslands. Hún hefur lengst af starfað í fjölskyldufyrirtækinu Kjörís, tók þar við stöðu framkvæmdastjóra 23 ára gömul þegar faðir hennar lést[2] en frá 2008-2021 var hún markaðsstjóri Kjöríss.
Guðrún var formaður Samtaka iðnaðarins frá 2014 - 2020. Hún hefur setið stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskólans í Reykjavík, Bláa Lónsins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna[1] og er formaður Landsamtaka lífeyrissjóða frá árinu 2018.
Gagnrýni
Í september 2024 ákvað Guðrún Hafsteinsdóttir, þrátt fyrir harða gagnrýni, að standa við ákvörðunum stjórnvalda um brottvísun Yazan Tamimis og foreldrum hans[3][4]. Að beiðni Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra ákvað hún síðar að afturkalla brottvísunina.[5]
Tilvísanir
- ↑ 1,0 1,1 Visir.is, „Guðrún Hafsteinsdóttir vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi“ (skoðað 30. maí 2021)
- ↑ „Framkvæmdastjóri Kjöríss hf, Guðrún Hafsteinsdóttir er ekki nema 24 ára“, Morgunblaðið, 8. maí 1994 (skoðað 30. maí 2021)
- ↑ Schram, Höskuldur Kári (16. september 2024). „Segir að ákvörðun um brottvísun Yazans standi þrátt fyrir frestun - RÚV.is“. RÚV. Sótt 17. september 2024.
- ↑ Jósefsdóttir, Sólrún Dögg (29. júní 2024). „Boða til samstöðufundar með Yazan - Vísir“. visir.is. Sótt 17. september 2024.
- ↑ https://www.visir.is/g/20242622354d/-tho-ad-thad-hafi-verid-mer-thvert-um-ged-
Fyrirrennari: Jón Gunnarsson |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |