Fara í innihald

Rauði listi IUCN

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 4. desember 2023 kl. 17:54 eftir Berserkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. desember 2023 kl. 17:54 eftir Berserkur (spjall | framlög)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Ástand stofns
eftir hættustigi á Rauða lista IUCN

Rauði listi IUCN eða Rauði listi Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna yfir tegundir í útrýmingarhættu er stærsta heildaryfirlit yfir ástand stofns lífvera. Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin (IUCN) hafa haldið þennan lista frá árinu 1964. Á listanum eru lífverur flokkaðar í níu flokka eftir ástandi. Mat um helmings lífvera á listanum er unnið úr gögnum annarra samtaka á borð við BirdLife International, Zoological Society of London og World Conservation Monitoring Centre.

Listinn var gagnrýndur árið 1997 vegna skorts á gagnsæi varðandi uppruna þeirra gagna sem hann byggist á. Í kjölfarið var skjölun bætt og gefinn möguleiki á ritrýni.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.