Fara í innihald

Hrómundur Þórisson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 17. júlí 2015 kl. 04:15 eftir OctraBot (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2015 kl. 04:15 eftir OctraBot (spjall | framlög) (Flytja til Wikidata á d:Q15661472.)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Hrómundur Þórisson var landnámsmaður í Borgarfirði, nam Þverárdal og Þverárhlíð ofan til Hallarmúla fram til Þverár og bjó á Hrómundarstöðum (nú Karlsbrekku) í Þverárhlíð.

Hrómundur var sonur Þóris Gunnlaugssonar í Hefni. Bróðir hans var Grímur háleyski og Ingimundur gamli Þorsteinsson ólst upp með þeim og var fóstbróðir þeirra. Hrómundur sigldi til Íslands og lenti í mynni Hvítár. Sonur hans var Gunnlaugur ormstunga Hrómundarson, langafi Gunnlaugs ormstungu Illugasonar.