ISO 4217 er alþjóðlegur staðall sem fyrirskipar þriggja stafa kóðum til að skilgreina nöfn gjaldmiðla og er gefinn út af Alþjóðlegu staðlastofnuninni.
ISO 4217 kóðar eru í almennri notkun af bönkum og kaupsýslu yfir allan heim. Í mörgum löndum eru kóðar algengra gjaldmiðla svo vel þekktir að þegar gengi þeirra eru birt, í blöðum og af bönkum, er einungis notast við þessa kóða (í stað þess að þýða nöfn þeirra eða notast við tvíræð gjaldeyrismerki).
Skilgreining
Fyrstu tveir stafir kóðans eru tveir stafir ISO 3166-1 (alpha-2) landsnúmeranna, og sá þriðji er yfirleitt fyrsti stafur gjaldmiðilsins sjálfs. Þannig að gjaldmiðilskóði Japans er, til dæmis, JPY — þar sem JP stendur fyrir Japan og Y fyrir jen (enska: yen). Þetta kemur í veg fyrir vandamál sem stafar af því að nöfnin dollar, franki og pund eru notuð af tugum landa, og hafa oft gríðarlega misjöfn verðgildi. Einnig, ef að gjaldmiðill er endurmetinn, er síðasta staf gjaldmiðilskóðanum breytt til að greina hann frá gamla gjaldmiðlinum. Í sumum tilfellum notast þriðji stafurinn við fyrsti stafinn í orðinu „nýr“ í tungumáli þess lands sem að gjaldmiðillinn heyrir til. Sem dæmi um þetta er Mexíkanski pesetinn (MXN) og Tyrkneska líran (TRY).
Einnig skilgreinir þessi staðall þriggja tölustafa talnakóða fyrir hvern gjaldmiðil, á sama veg og til er þriggja stafa talnakóði fyrir hvert land sem hluti af ISO 3166.
ISO 4217 inniheldur kóða fyrir ekki bara fyrir gjaldmiðla, heldur einnig verðmæta málma (gull, silfur, palladín og platína; mælt samkvæmt troyesúnsu einingum) og aðrar einingar, eins og til dæmis Sérstök dráttarréttindi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (XDR). Einnig eru sérstakir kóðar úthlutaðir fyrir prófanir (XTS), og til að gefa til kynna að engin gjaldmiðilsfærsla hafi átt stað (XXX). Þessi tákn byrja öll á stafinum „X“. Verðmætir málmar notast við „X“ ásamt efnatákni málmsins; silfur er sem dæmi XAG. ISO 3166 úthlutar aldrei landakóða sem byrja á „X“ og er þess vegna óhætt að nota þann staf fyrir gjaldmiðla sem ekki eru tengdir ákveðnum löndum.
Yfirþjóðlegir gjaldmiðlar, eins og til dæmis Austurkarabískur dalur, Pólýnesískur franki, Vesturafrískur franki og Miðafrískur franki eru yfirleitt einnig úthlutað kóðum sem byrja á „X“. Evran er undantekning á þessu og notast við kóðann EUR, þó að EU sé ekki ISO 3166-1 landakóði, var það notað þrátt fyrir það, og því EU bætt inn á ISO 3166-1 hliðarlista til að standa fyrir Evrópusambandið. Undanfari evrunar, Evrópska mynteiningin, hafði kóðann XEU.
Saga
Árið 1973 ákvað Tækninefnd ISO Númer 68 að þróa kóða sem framsetningu á gjaldmiðlum og sjóðum sem notaðir væru í verslun, viðskiptum, og bankastarfsemi. Við 17. fund sérfræðinga Evrópsku Efnahagsnefnd Sameinuðuþjóðanna (Febrúar 1978) var ákveðið að þessir þriggja stafa kóðar, sem skilgreindir voru samkvæmt ISO 4217, væru hæfilegir til notkunar í alþjóðlegum viðskiptum.
Með tíð og tíma verða nýjir gjaldmiðlar til og gömlir gjaldmiðlar lagðir niður. Yfirleitt eru þessar breytingar sökum nýrra ríkistjórna (hvort sem er í gegnum stríð eða nýja stjórnarskrá), milliríkjasamninga um nýjan gjaldmiðil, eða gengisbreytingu sökum of mikillar verðbólgu. Sökum þess er kóðalistinn uppfærður öðru hvoru og er Breska Staðlastofnunin ábyrg fyrir að viðhaldi á honum.
Núgildandi kóðar
Kóði
|
Gjaldmiðill
|
Staðsetning
|
AED |
Arabískt dírham |
Sameinuðu arabísku furstadæmin
|
AFN |
Afgani |
Afganistan
|
ALL |
Lek |
Albanía
|
AMD |
Dramm |
Armenía
|
ANG |
Hollenskt Antillugyllini |
Hollensku Antillaeyjar
|
AOA |
Kvansa |
Angóla
|
ARS |
Argentínskur pesi |
Argentína
|
AUD |
Ástralskur dalur |
Ástralía
|
AWG |
Arúbískt gyllini |
Arúba
|
AZN |
Aserskt manat |
Aserbaídsjan
|
BAM |
Bosnískt mark |
Bosnía og Hersegóvína
|
BBD |
Barbadoskur dalur |
Barbados
|
BDT |
Taka |
Bangladess
|
BGN |
Lef |
Búlgaría
|
BHD |
Breinskur denari |
Barein
|
BIF |
Búrúndískur franki |
Búrúndí
|
BMD |
Bermúdadalur |
Bermúda
|
BND |
Brúneiskur dalur |
Brúnei
|
BOB |
Bólivíani |
Bólivía
|
BOV |
Bólivískt Mvdol (Fjármunakóði) |
Bólivía
|
BRL |
Brasilískt ríal |
Brasilía
|
BSD |
Bahamskur dalur |
Bahamaeyjar
|
BTN |
Ngultrum |
Bútan
|
BWP |
Púla |
Botsvana
|
BYR |
Hvítrússnesk rúbla |
Hvíta-Rússland
|
BZD |
Belískur dalur |
Belís
|
CAD |
Kanadískur dalur |
Kanada
|
CDF |
Kongóskur franki |
Kongó
|
CHF |
Svissneskur franki |
Sviss
|
CLF |
Unidades de formento (Fjármunakóði) |
Chile
|
CLP |
Síleskur pesi |
Chile
|
CNY |
Júan |
Kína
|
COP |
Kólumbískur pesi |
Kólumbía
|
COU |
Unidad de Valor Real |
Kólumbía
|
CRC |
Kostarískt kólon |
Kosta Ríka
|
CSD |
Serbískur denari |
Serbía
|
CUP |
Kúbverskur pesi |
Kúba
|
CVE |
Grænhöfðeyskur skúti |
Grænhöfðaeyjar
|
CYP |
Kýpverskt pund |
Kýpur
|
CZK |
Tékknesk króna |
Tékkland
|
DJF |
Djíbútískur franki |
Djíbútí
|
DKK |
Dönsk króna |
Danmörk og Færeyjar
|
DOP |
Dóminískur pesi |
Dóminíska lýðveldið
|
DZD |
Alsírskur denari |
Alsír
|
EEK |
Eistnesk króna |
Eistland
|
EGP |
Egypskt pund |
Egyptaland
|
ERN |
Nakfa |
Erítrea
|
ETB |
Eþíópískt birr |
Eþíópía
|
EUR |
Evra |
Andorra, Austurríki, Belgía, Finnland, Frakkland, Franska Gvæjana, Frönsku suðlægu landsvæðin, Grikkland, Guadeloupe, Holland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Martiník, Mayotte, Mónakó, Páfagarður, Portúgal, Réunion, Sankti Pierre og Miquelon, San Marínó, Spánn, Svartfjallaland, Þýskaland
|
FJD |
Fídjeyskur dalur |
Fídjieyjar
|
FKP |
Falklenskt pund |
Falklandseyjar
|
GBP |
Sterlingspund |
Stóra Bretland
|
GEL |
Lari |
Georgía
|
GHC |
Sedi |
Gana
|
GIP |
Gíbraltarspund |
Gíbraltar
|
GMD |
Dalasi |
Gambía
|
GNF |
Gíneufranki |
Gínea
|
GTQ |
Kvesal |
Gvatemala
|
GYD |
Gvæjanskur dalur |
Gvæjana
|
HKD |
Hong Kong dalur |
Hong Kong
|
HNL |
Lempíra |
Hondúras
|
HRK |
Kúna |
Króatía
|
HTG |
Haítískur gúrdi |
Haítí
|
HUF |
Fórinta |
Ungverjaland
|
IDR |
Indónesísk rúpía |
Indónesía
|
ILS |
Sikill |
Ísrael
|
INR |
Indversk rúpía |
Bútan, Indland
|
IQD |
Íraskur denari |
Írak
|
IRR |
Íranskt ríal |
Íran
|
ISK |
Íslensk króna |
Ísland
|
JMD |
Jamaískur dalur |
Jamaíka
|
JOD |
Jórdanskur denari |
Jórdanía
|
JPY |
Jen |
Japan
|
KES |
Kenískur skildingur |
Kenía
|
KGS |
Som |
Kirgistan
|
KHR |
Kambódískt ríal |
Kambódía
|
KMF |
Kómoreyskur franki |
Kómoreyjar
|
KPW |
Norðurkóreskt vonn |
Norður-Kórea
|
KRW |
Suðurkóreskt vonn |
Suður-Kórea
|
KWD |
Kúveitskur denari |
Kúveit
|
KYD |
Caymaneyskur dalur |
Caymaneyjar
|
KZT |
Tengi |
Kasakstan
|
LAK |
Kip |
Laos
|
LBP |
Líbanskt pund |
Líbanon
|
LKR |
Srílönsk rúpía |
Srí Lanka
|
LRD |
Líberskur dalur |
Líbería
|
LSL |
Loti |
Lesótó
|
LTL |
Litháenskt lít |
Litháen
|
LVL |
Lettlenskt lat |
Lettland
|
LYD |
Líbískur denari |
Líbía
|
MAD |
Marokkóskt dírham |
Marokkó, Vestur-Sahara
|
MDL |
Moldavískt lei |
Moldóva
|
MGA |
Malagasy Ariary * |
Madagaskar
|
MKD |
Makedónískur denari |
Makedónía
|
MMK |
Kíat |
Mjanmar
|
MNT |
Túríkur |
Mongólía
|
MOP |
Pataka |
Makaó
|
MRO |
Úgía |
Máritanía
|
MTL |
Maltnesk líra |
Malta
|
MUR |
Máritísk rúpía |
Máritíus
|
MVR |
Maldíveysk rúpía |
Maldíveyjar
|
MWK |
Malavísk kvaka |
Malaví
|
MXN |
Mexikóskur pesi |
Mexíkó
|
MXV |
Mexíkóskt Unidad de Inversion (Fjármunakóði) |
Mexíkó
|
MYR |
Ringit |
Malasía
|
MZM |
Metikal |
Mósambík
|
NAD |
Namibískur dalur |
Namibía
|
NGN |
Næra |
Nígería
|
NIO |
Kordóva |
Níkaragva
|
NOK |
Norsk króna |
Noregur
|
NPR |
Nepölsk rúpía |
Nepal
|
NZD |
Nýsjálenskur dalur |
Cooks-eyjar, Nýja-Sjáland, Niue, Pitcairn, Tókelá
|
OMR |
Ómanskt ríal |
Óman
|
PAB |
Balbói |
Panama
|
PEN |
Sól |
Perú
|
PGK |
Kína |
Papúa Nýja-Gínea
|
PHP |
Filippeyskur pesi |
Filippseyjar
|
PKR |
Pakistönsk rúpía |
Pakistan
|
PLN |
Slot |
Pólland
|
PYG |
Gvaraní |
Paragvæ
|
QAR |
Katarskt ríal |
Katar
|
RON |
Rúmenskt lei |
Rúmenía
|
RUB |
Rússnesk rúbla |
Rússland
|
RWF |
Rúandskur franki |
Rúanda
|
SAR |
Sádíarabískt ríal |
Sádí-Arabía
|
SBD |
Salómoneyskur dalur |
Salómonseyjar
|
SCR |
Seychelleseyjarúpía |
Seychelleseyjar
|
SDD |
Súdanskur denari |
Súdan
|
SEK |
Sænsk króna |
Svíþjóð
|
SGD |
Singapúrskur dalur |
Singapúr
|
SHP |
Helenskt pund |
Sankti Helena
|
SIT |
Slóvenskur dalur |
Slóvenía
|
SKK |
Slóvakísk króna |
Slóvakía
|
SLL |
Ljóna |
Síerra Leóne
|
SOS |
Sómalískur skildingur |
Sómalía
|
SRD |
Súrínamskur dalur |
Súrínam
|
STD |
Dóbra |
Saó Tóme og Prinsípe
|
SYP |
Sýrlenskt pund |
Sýrland
|
SZL |
Lílangeni |
Svasíland
|
THB |
Bat |
Taíland
|
TJS |
Sómóni |
Tadsjikistan
|
TMM |
Túrkmenistískt manat |
Túrkmenistan
|
TND |
Túniskur denari |
Túnis
|
TOP |
Panga |
Tonga
|
TRY |
Tyrknesk líra |
Tyrkland
|
TTD |
Trínidad og Tóbagó dalur |
Trínidad og Tóbagó
|
TWD |
Taívanskur dalur |
Taívan
|
TZS |
Tansanískur skildingur |
Tansanía
|
UAH |
Hrinja |
Úkraína
|
UGX |
Úgandskur skildingur |
Úganda
|
USD |
Bandarískur dalur |
Austur-Tímor, Bandaríkin, Bandaríska Samóa, Bresku Indlandshafseyjar, Ekvador, El Salvador, Gvam, Haítí, Jómfrúaeyjar, Marshall-eyjar, Míkrónesía, Norður-Maríanaeyjar, Palá, Panama, Turks- og Caicoseyjar, Vestur-Samóa
|
UYU |
Úrúgvæskur pesi |
Úrúgvæ
|
UZS |
Úsbekistískt súm |
Úsbekistan
|
VEB |
Bólívari |
Venesúela
|
VND |
Dong |
Víetnam
|
VUV |
Vatú |
Vanúatú
|
WST |
Tala |
Samóa
|
XAF |
Miðafrískur franki |
Gabon, Kamerún, Kongó, Mið-Afríkulýðveldið, Miðbaugs-Gínea, Tsjad
|
XAG |
Silfur |
Ein troyesúnsa
|
XAU |
Gull |
Ein troyesúnsa
|
XBA |
Evrópsk samsett eining (EURCO) |
Skuldabréfamarkaðseining
|
XBB |
Evrópsk gjaldmiðilseining (EMU-6) |
Skuldabréfamarkaðseining
|
XBC |
Evrópsk reikningseining 9 (EUA-9) |
Skuldabréfamarkaðseining
|
XBD |
Evrópsk reikningseining 17 (EUA-17) |
Skuldabréfamarkaðseining
|
XCD |
Austurkarabískur dalur |
Angvilla, Antígva og Barbúda, Dóminíka, Grenada, Montserrat, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsía, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar
|
XDR |
Sérstök dráttarréttindi |
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
|
XFO |
Gullfranki |
Sérstakur greiðslugjaldmiðill
|
XFU |
Franki Alþjóðasamtaka járnbrautarlesta |
Sérstakur greiðslugjaldmiðill
|
XOF |
Vesturafrískur franki |
Benín, Búrkína Fasó, Fílabeinsströndin, Gínea-Bissá, Malí, Níger, Senegal, Tógó
|
XPD |
Palladín |
Ein troyesúnsa
|
XPF |
Pólýnesískur franki |
Franska Pólýnesía, Nýja-Kaledónía, Wallis- og Fútúnaeyjar
|
XPT |
Platína |
Ein troyesúnsa
|
XTS |
|
Frátekinn prufukóði
|
XXX |
|
Enginn gjaldmiðill
|
YER |
Jemenskt ríal |
Jemen
|
ZAR |
Suðurafrískt rand |
Lesótó, Namibía, Suður-Afríka
|
ZMK |
Sambísk kvaka |
Sambía
|
ZWD |
Simbabveskur dalur |
Simbabve
|