Fara í innihald

„Bandaríkjadalur“: Munur á milli breytinga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efni eytt Efni bætt við
Xqbot (spjall | framlög)
Jotterbot (spjall | framlög)
m robot Bæti við: br:Dollar stadunanat
Lína 24: Lína 24:
[[bn:মার্কিন ডলার]]
[[bn:মার্কিন ডলার]]
[[bpy:ইউ এস ডলার]]
[[bpy:ইউ এস ডলার]]
[[br:Dollar stadunanat]]
[[bs:Američki dolar]]
[[bs:Američki dolar]]
[[ca:Dòlar dels Estats Units]]
[[ca:Dòlar dels Estats Units]]

Útgáfa síðunnar 1. október 2010 kl. 19:32

Dollaraseðill.

Bandaríkjadalur, bandarískur dalur eða dollari er gjaldmiðill Bandaríkjanna. Hann er einnig notaður víða sem varasjóðsmynt, en slík notkun utan Bandaríkjanna leiddi meðal annars til þess að gullfótur Bandaríkjadals var lagður niður 1971 (Bretton Woods-kerfið), þar sem orðnar voru til meiri birgðir af dölum utan Bandaríkjanna, en öllum gullforða þeirra nam. Árið 1995 voru yfir 380 milljarðar dala í umferð, þar af tveir þriðju utan Bandaríkjanna. 2005 var þessi tala komin í 760 milljarða og áætlað að á milli helmingur og tveir þriðju séu í umferð utan Bandaríkjanna.

Algengasta táknið fyrir Bandaríkjadal er „dollaramerkið“ ($). ISO 4217-táknið fyrir Bandaríkjadal er USD. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn notar einnig táknið US$ fyrir gjaldmiðilinn.

Mörg lönd nota heitið dalur eða dollar, en nafnið er dregið af orðinu dalur (Taler á þýsku). Ekvador, El Salvador og Austur-Tímor, auk yfirráðasvæða Bandaríkjanna, nota Bandaríkjadal sem opinberan gjaldmiðil. Að auki hafa Bermúda, Bahamaeyjar, Panama, Líbería og nokkur önnur lönd bundið sína gjaldmiðla við Bandaríkjadal á genginu 1:1. Gjaldmiðill Barbados er sömuleiðis bundinn við gengið 2:1.