„Condoleezza Rice“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
Condoleezza Rice fæddist í [[Birmingham, Alabama|Birmingham]] í [[Alabama]] fylki þar sem hún ólst upp fram að 13 ára aldri. Eftir að hafa flutt með fjölskyldu sinni til [[Denver]] í [[Colorado]] árið 1967, hóf hún nám við kaþólska stúlknaskólann St. Mary‘s Academy og lauk því árið 1971. Hún hóf svo nám við háskólann í Denver, með píanóspilun sem aðal námsbraut, en fór fljótlega að leita á önnur mið og skipti yfir í stjórnmálafræði. Árið 1974 lauk hún B.A. prófi í [[stjórnmálafræði]] þá aðeins 19 ára gömul, og ári seinna lauk hún svo mastersnámi í stjórnmálafræði frá háskólanum í Notre Dame. Eftir að hafa klárað mastersnám hélt hún áfram námi en ákvað þá að snúa aftur til háskólans í Denver og lauk þaðan [[doktorsritgerð|doktorsprófi]] í stjórnmálafræði árið 1981. |
Condoleezza Rice fæddist í [[Birmingham, Alabama|Birmingham]] í [[Alabama]] fylki þar sem hún ólst upp fram að 13 ára aldri. Eftir að hafa flutt með fjölskyldu sinni til [[Denver]] í [[Colorado]] árið 1967, hóf hún nám við kaþólska stúlknaskólann St. Mary‘s Academy og lauk því árið 1971. Hún hóf svo nám við háskólann í Denver, með píanóspilun sem aðal námsbraut, en fór fljótlega að leita á önnur mið og skipti yfir í stjórnmálafræði. Árið 1974 lauk hún B.A. prófi í [[stjórnmálafræði]] þá aðeins 19 ára gömul, og ári seinna lauk hún svo mastersnámi í stjórnmálafræði frá háskólanum í Notre Dame. Eftir að hafa klárað mastersnám hélt hún áfram námi en ákvað þá að snúa aftur til háskólans í Denver og lauk þaðan [[doktorsritgerð|doktorsprófi]] í stjórnmálafræði árið 1981. |
||
Pólitískar skoðanir Condoleezza Rice |
Pólitískar skoðanir Condoleezza Rice aðhylltust [[Demókrataflokkurinn|Demókrataflokkinn]] til ársins 1982 en snérist þá til [[Repúblikanaflokkurinn|Repúblikanaflokksins]] eftir að hafa orðið ósammála skoðunum fyrrum forseta Bandaríkjanna [[Jimmy Carter]] í utanríkismálum. Þess má geta að faðir hennar skipti einnig úr Demókrataflokknum yfir í Repúblikanaflokkinn eftir að hafa verið neitað um skráningu í flokkinn árið 1952. |
||
== Akademískur ferill == |
== Akademískur ferill == |
Útgáfa síðunnar 24. september 2010 kl. 21:11
Condoleezza Rice (fædd 14. nóvember 1954) er bandarískur prófessor og stjórnmálamaður. Hún starfaði í ríkisstjórn George W. Bush og gegndi þar m.a. embætti utanríkisráðherra og var fyrsta blökkukonan til þess. Áður en hún tók við því embætti hafði hún starfað sem öryggisráðgjafi forseta. Fyrr á ferli sínum starfaði hún sem prófessor í stjórnmálafræði við Stanford háskóla. Þar áður hafði hún starfað sem ráðgjafi í ríkisstjórn George H. W. Bush þar sem hún var sérfræðingur í málum er snéru að Sovétríkjunum og Austur-Evrópu.
Æska og menntun
Condoleezza Rice fæddist í Birmingham í Alabama fylki þar sem hún ólst upp fram að 13 ára aldri. Eftir að hafa flutt með fjölskyldu sinni til Denver í Colorado árið 1967, hóf hún nám við kaþólska stúlknaskólann St. Mary‘s Academy og lauk því árið 1971. Hún hóf svo nám við háskólann í Denver, með píanóspilun sem aðal námsbraut, en fór fljótlega að leita á önnur mið og skipti yfir í stjórnmálafræði. Árið 1974 lauk hún B.A. prófi í stjórnmálafræði þá aðeins 19 ára gömul, og ári seinna lauk hún svo mastersnámi í stjórnmálafræði frá háskólanum í Notre Dame. Eftir að hafa klárað mastersnám hélt hún áfram námi en ákvað þá að snúa aftur til háskólans í Denver og lauk þaðan doktorsprófi í stjórnmálafræði árið 1981. Pólitískar skoðanir Condoleezza Rice aðhylltust Demókrataflokkinn til ársins 1982 en snérist þá til Repúblikanaflokksins eftir að hafa orðið ósammála skoðunum fyrrum forseta Bandaríkjanna Jimmy Carter í utanríkismálum. Þess má geta að faðir hennar skipti einnig úr Demókrataflokknum yfir í Repúblikanaflokkinn eftir að hafa verið neitað um skráningu í flokkinn árið 1952.
Akademískur ferill
Eftir að hafa lokið námi árið 1981 hóf hún að kenna við Stanford háskóla. Þar var hún aðstoðarprófessor í stjórnmálafræði með áherslu á Sovétríkin og hélt þeirri stöðu til 1987 þegar hún hlaut stöðuhækkun. Hún hefur síðan unnið við háskólann með hléum en snéri aftur til starfa þar eftir að ný ríkisstjórn tók við í byrjun árs 2009.
Upphaf stjórnmálaferils
Árið 1986, ásamt því að sinna alþjóðamálum innan Utanríkisráðuneytisins, starfaði hún sem aðstoðarmaður yfirmanns Hernaðarráðs. Frá árunum 1989 til mars 1991 sat hún í stjórn George H. W. Bush Bandaríkjaforseta sem yfirmaður og síðar meir sem æðsti yfirmaður í málum er snéru að Sovétríkjunum og Austur-Evrópu í Öryggisráði Bandaríkjanna. Sem aðstoðarmaður í Öryggisráðinu tók hún þátt í því að þróa stefnur Bush og James Baker utanríkisráðherra hvað varðar sameiningu Þýskalands. Seinni hluta árs 1991 skipaði ríkisstjóri Kaliforníu, Pete Wilson, hana í þverpólitíska nefnd sem hafði það hlutverk að gera drög að nýju löggjafarvaldi og löggjafarþingi umdæmis í Kaliforníuríki. Árið 1997 sat hún í ráðgjafanefnd er snéri að herþjálfun kynjanna. Í kosningabaráttu George W. Bush árið 2000 tók hún sér ársleyfi frá Stanford háskóla til þess að aðstoða hann sem ráðgjafi í utanríkismálum. Þann 17. desember árið 2000 tók hún við stöðu ráðgjafa í Öryggisráði Bandaríkjanna og sagði upp stöðu sinni við Stanford háskóla. Það má til gamans geta að hún var fyrsta konan til að gegna því embætti.
Embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna (2005-2009)
Þann 16. nóvember 2004 var hún skipuð í embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna af George W. Bush og þann 26. janúar 2005 var sú skipun staðfest af öldungadeildinni með 85 atkvæðum gegn 13. Þau atkvæðu sem bárust gegn skipun hennar komu frá öldungadeildarþingmönnum sem, að sögn Barbara Boxer, voru þeirrar skoðunar að gerð höfðu verið mistök í málefnum Íraks og stríðinu gegn hryðjuverkum og að þau mistök væru á ábyrgð Condoleezza Rice og öðrum meðlimum ríkisstjórnar Georg W. Bush. Þeirra rök voru þau að óábyrgt hafi verið af henni að leggja stjórnarfar Saddam Hussein að jöfnu við þau hryðjuverk sem kennd voru við Islam. Sem dæmi greiddi öldungadeildarþingmaðurinn Robert Byrd atkvæði gegn skipun hennar og gaf um leið til kynna að hún stæði vörð um að stríðsvöld forsetans væru umfram það sem stjórnarskráin kvæði á um. Á tíð sinni sem utanríkisráðherra talaði hún fyrir útbreiðslu lýðræðis sem stjórnarforms í heiminum. Hún sagði árásirnar 11. september hafa átt rætur að rekja til kúgunar og vonleysis og því þyrftu Bandaríkin að koma að erindinu um bætt stjórnskipulag, þá í formi lýðræðis, til Mið-Austurlandanna. Condoleezza gerði umtalsverðar breytingar á utanríkisráðuneytinu og talaði hún um erindrekstur umbreytinga sem nýtt hlutverk þess. Þetta nýja hlutverk ráðuneytisins var að vinna með nánum bandamönnum um heim allan með það að markmiði að koma á fót vel stýrðum lýðræðisríkjum þar sem þarfir þegnanna eru hafðar í forgrunni og viðhöfð er góð og ábyrg hegðun á meðal alþjóðakerfisins.
Vangaveltur um forsetakosningarnar 2008
Víða höfðu verið vangaveltur um hvort Condoleezza Rice hugðist bjóða sig fram í forkosningar Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2008. Í febrúar 2008 útilokaði hún þann möguleika með því að segja að það eina sem hún sæi sjálfa sig ekki gera væri að bjóða sig fram í eitthvert af kjörnum embættum Bandaríkjanna. Í skoðanakönnun Gallup, sem gerð var dagana 24. – 27. mars 2008, kom fram að átta prósent spurðra nefndu hana sem fyrsta valkost varaforsetaefnis John McCain. Varðandi þann möguleika sagði hún hins vegar í viðtali, sem birt var við hana í Washington Post þann 27. mars 2008, að hún hefði einfaldlega ekki áhuga.