Fara í innihald

„Atlantshafsbandalagið“: Munur á milli breytinga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efni eytt Efni bætt við
Finnland er komið í NATO, sbr. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/04/04/finnland_gengid_inn_i_nato/
Lína 19: Lína 19:
|hnit=
|hnit=
|markaðsvæði=
|markaðsvæði=
|meðlimir=30 ríki
|meðlimir=31 ríki
|tungumál=[[Enska]], [[franska]]
|tungumál=[[Enska]], [[franska]]
|leader_title = Framkvæmdastjóri
|leader_title = Framkvæmdastjóri
Lína 80: Lína 80:
* [[Svartfjallaland]] ([[2017]])
* [[Svartfjallaland]] ([[2017]])
* [[Norður-Makedónía]] ([[2020]])
* [[Norður-Makedónía]] ([[2020]])
* [[Finnland]] ([[2023]])
|}
|}


*Þýskaland gekk í sambandið sem [[Vestur-Þýskaland]], landsvæðið sem áður var [[Austur-Þýskaland]] varð hluti af NATÓ með sameiningu þýsku ríkjanna árið [[1990]].
*Þýskaland gekk í sambandið sem [[Vestur-Þýskaland]], landsvæðið sem áður var [[Austur-Þýskaland]] varð hluti af NATÓ með sameiningu þýsku ríkjanna árið [[1990]].


*[[Svíþjóð]] og [[Finnland]] sóttu um aðild að bandalaginu eftir [[innrás Rússa í Úkraínu 2022]].
*[[Svíþjóð]] og [[Finnland]] sóttu um aðild að bandalaginu eftir [[innrás Rússa í Úkraínu 2022]]. Finnland fékk inngöngu [[4. apríl]] 2023.


== Tenglar ==
== Tenglar ==

Útgáfa síðunnar 4. apríl 2023 kl. 13:31

Atlantshafsbandalagið
North Atlantic Treaty Organization
Organisation du traité de l'Atlantique nord
Fáni Atlantshafsbandalagsins

Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins (2020) sjást hér grænlituð.
SkammstöfunNATO (enska); OTAN (franska)
EinkennisorðAnimus in consulendo liber
Stofnun4. apríl 1949; fyrir 75 árum (1949-04-04)
GerðHernaðarbandalag
HöfuðstöðvarFáni Belgíu Brussel, Belgíu
Meðlimir31 ríki
Opinber tungumálEnska, franska
Vefsíðawww.nato.int

Atlantshafsbandalagið (einnig NATÓ eftir enskri skammstöfun á nafni þess: North Atlantic Treaty Organisation eða OTAN eftir franskri skammstöfun á heiti þess, (l'Organisation du traité de l'Atlantique nord)) er hernaðarbandalag. Skrifað var undir stofnsáttmála bandalagsins í Washington D.C. 4. apríl 1949.

Kjarni bandalagsins er 5. grein stofnsáttmálans þar sem því er lýst yfir að árás á eitt bandalagsríki í Evrópu eða Norður-Ameríku jafngildi árás á þau öll. Sú grein var hugsuð til að gera Sovétríkjunum það ljóst að innrás inn í Vestur-Evrópu jafngilti stríðsyfirlýsingu við Bandaríkin og allan hernaðarmátt þeirra. Á móti stofnuðu Sovétríkin ásamt bandamönnum sínum í Austur-Evrópu Varsjárbandalagið. Hernaðarbandalögin tvö léku síðan aðalhlutverk í Kaldastríðinu og því vígbúnaðarkapphlaupi og kjarnorkuvopnavæðingu sem einkenndu það. Innrás Sovétmanna í Vestur-Evrópu varð aldrei að veruleika og 5. grein NATO-samningsins hefur aðeins verið notuð einu sinni en það var 12. september 2001 eftir hryðjuverkaárás á Bandaríkin.

Aðild Íslands að NATO

Lög um inngöngu Íslands í NATO voru samþykkt á Alþingi, 30. mars 1949. Þau voru mjög umdeild og talsverðar óeirðir urðu í sambandi samþykkt þeirra á Austurvelli. Andstæðingar NATO-aðildar kröfðust þjóðaratkvæðis um þetta mikilvæga mál en ekki var orðið við því. Hins vegar var því lofað að aldrei yrði erlendur her á íslenskri grundu á friðartímum. NATO ásamt Bandaríkjaher rak Keflavíkurherstöðina á Miðnesheiði frá 1951 til 2006.

Aðildarríki

Stofnfélagar (1949): Ríki sem fengu inngöngu síðar:

Tenglar

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.