Fara í innihald

„Líf“: Munur á milli breytinga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efni eytt Efni bætt við
Eantonsson (spjall | framlög)
 
(12 millibreytinga eftir 6 notendur ekki sýndar)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Grand_prismatic_spring.jpg|thumb|right|[[Örvera|Örverubreiður]] í kringum [[hver]].]]
{{aðgreiningartengill}}
{{aðgreiningartengill}}
[[Mynd:Aerial image of Grand Prismatic Spring (view from the south).jpg|thumb|right|[[Örvera|Örverubreiður]] í kringum [[hver]].]]
'''Líf''' er sú [[eigind]] sem aðgreinir [[lífvera|lífveru]] frá lífvana [[efni]]. Líf er þar af leiðandi eitt [[hugtak|grunnhugtaka]] [[líffræði|líffræðanna]] en er þó vandmeðfarið og síður en svo [[skilgreining|auðskilgreint]]. Skilgreining á lífi og því hvaða fyrirbrigði má telja til lífvera og hver ekki hefur oft verið deiluefni. Sem dæmi má nefna að ekki er ljóst hvort telja skuli [[veira|veirur]] til lífvera. Í daglegu máli er sjaldnast gerður greinarmunur á eigindinni líf og hugtökum á borð við [[líferni]] og [[ævi]] [[lífvera|lífveru]] en ekki er fjallað sérstaklega um þau hér.
'''Líf''' er [[eiginleiki]] sem aðgreinir [[efni]] sem býr yfir [[lífrænt ferli|lífrænum ferlum]] eins og [[frumuboðskipti|frumuboðskiptum]] og sjálfbærum vexti, frá efni sem ekki býr yfir slíkum ferlum. Meðal þess sem einkennir lifandi efni er [[samvægi]], [[lífrænt skipulag]], [[efnaskipti]], [[frumuvöxtur]], [[aðlögun]] og [[æxlun]]. Allt líf [[fæðing|fæðist]] og [[dauði|deyr]].<ref>{{Vísindavefurinn|7117|Er líf eftir dauðann?|höfundur=Jón Gunnar Þorsteinsson|dags=29.2.2008}}</ref> [[Ódauðleiki]] er ekki til. Til eru margar heimspekilegar skilgreiningar á því hvað [[lífkerfi]] er. Líf er grundvallarhugtak í [[líffræði]], en er þó vandmeðfarið og síður en svo auðvelt að skilgreina.<ref>{{vísindavefurinn|687|Er til fullnægjandi fræðileg skilgreining á lífi?|höfundur=Guðmundur Eggertsson|dags=24.7.2000}}</ref> Sem dæmi má nefna að ekki er ljóst hvort telja skuli [[veira|veirur]] til lífvera þar sem þær geta ekki fjölgað sér sjálfstætt utan hýsilfrumu. Líf finnst um alla jörðina: í andrúmsloftinu, vatni og jarðvegi. [[Lífhvolfið]] er myndað úr mörgum [[vistkerfi|vistkerfum]], en hluti af því er umhverfi sem er fjandsamlegt flestum lífverum nema [[jaðarlífvera|jaðarlífverum]].

Hægt er að rekja [[uppruni lífs|uppruna lífs]] á jörðinni 3,5 milljarða ára aftur í tímann,<ref>{{Vísindavefurinn|168|Hvenær kviknaði líf á jörðinni og hvers vegna?|höfundur=Guðmundur Eggertsson|dags=29.2.2000}}</ref> þannig að allar lífverur eiga sér [[sameiginlegur forveri alls lífs|sameiginlegan forvera]] samkvæmt einni tilgátu.<ref>{{vísindavefurinn|204|Hver var fyrsta lífveran á jörðinni?|höfundur=Einar Árnason|dags=9.3.2000}}</ref> Allar [[tegund (líffræði)|tegundir]] [[lífvera]] hafa þróast út frá þessum síðasta sameiginlega forvera.<ref>{{Vísindavefurinn|4065|Af hverju er lífið til?|höfundur=Þorsteinn Vilhjálmsson|dags=17.3.2004}}</ref> Margar þeirra hafa [[útdauði|dáið út]] og skilið eftir sig [[steingervingur|steingervinga]]. Líf hefur verið viðfangsefni rannsókna að minnsta kosti frá [[fornöld]]. Samkvæmt [[efnishyggja|efnishyggju]] [[Empedókles]]ar var líf myndað úr fjórum [[frumefni fornaldar|frumefnum]]. [[Aristóteles]] setti fram hugmyndina um að allar lifandi verur hefðu [[sál]]. Hann var líka fyrstur til að reyna að flokka lífverur skipulega. Nútímaflokkunarfræði lífvera kom fram á 18. öld með [[tvínefni|tvínefnakerfi]] [[Carl von Linné|Carls von Linné]].

Efnafræðilega eru lífverur myndaðar úr [[lífefnafræði|lífrænum sameindum]] sem að mestu eru gerðar úr nokkrum lykil[[frumefni|frumefnum]]. Allar lífverur hafa tvenns konar stórar sameindir: [[prótein]] og [[kjarnsýra|kjarnsýrur]], oftast bæði [[deoxýríbósakjarnsýra|deoxýríbósakjarnsýrur]] og [[ríbósakjarnsýra|ríbósakjarnsýrur]]. Kjarnsýrurnar geyma upplýsingar sem hver tegund þarfnast, meðal annars upplýsingar um gerð próteina. Próteinin eru svo efnafræðileg undirstaða hinna ýmsu lífrænu ferla. Undirstöðueining allra lífvera er [[fruma]]n. Langflestar lífverur (til dæmis allir [[dreifkjörnungur|dreifkjörnungar]]) eru [[örvera|einfruma]], en sumir [[heilkjörnungur|heilkjörnungar]] mynda flóknari [[fjölfrumungur|fjölfruma lífverur]]. Líf er eingöngu þekkt á jörðinni, en [[þverstæða Fermis|talið er líklegt]] að [[stjörnulíffræði|líf sé til á öðrum hnöttum]]. Vísindamenn reyna oft að herma eftir lífrænum ferlum og búa til [[gervilíf]] í rannsóknarskyni.


== Skilgreining ==
== Skilgreining ==
Lína 16: Lína 20:
* Veira vex ekki, stundar engin efnaskipti og getur ekki fjölgað sér utan hýsils og er álitamál hvort sé talin til lífs eða ekki.
* Veira vex ekki, stundar engin efnaskipti og getur ekki fjölgað sér utan hýsils og er álitamál hvort sé talin til lífs eða ekki.


== Uppruni lífs ==
== Þróun ==
=== Uppruni ===
{{aðalgrein|Uppruni lífs}}
{{aðalgrein|Uppruni lífs}}
Líf er talið hafa orðið til á [[Jörðin]]ni fyrir hér um bil 3,5 til 4 [[milljarður|milljörðum]] ára<ref name="GudmEgg_2003">{{cite journal |author=Guðmundur Eggertsson |title=Uppruni lífs|journal=Náttúrufræðingurinn|volume=71 |pages=145-152 |year=2003 |pmid=}}</ref><ref name="Staley_etal_2007">{{cite book | last = Staley | first = Andrew D. | coauthors = R. P. Gunsalus, S. Lory og J. J. Perry | title = Microbial Life, 2. útg. | publisher = Sinauer Associates, Inc. | year = 2007 | isbn = 978-0-87893-685-4}}</ref>. Ljóst er að allar núlifandi lífverur stunda efnaskipti sem eru í meginatriðum sömu gerðar og hafa [[erfðaefni]] á formi [[kjarnsýra|kjarnsýrunnar]] DNA. Þessi atriði og ýmis fleiri styðja þá tilgátu að allar lífverur Jarðarinnar eigi sér sameiginlegan [[Síðasti sameiginlegi forfaðir allra núlifandi lífvera|áa]]. [[Sjálfskviknun|Sjálfkviknun]] lífvera úr lífvana efni, sem um aldir var álitin útskýra tilurð lífvera, var [[Hrekjanleiki|afsönnuð]] af [[Louis Pasteur]] um miðja [[19. öld]]. Hvernig líf kviknaði á Jörðinni í árdaga er enn að verulegu leyti ráðgáta, en þó hafa veigamiklir hlekkir í hinni löngu keðju atburða sem hlýtur að liggja frá ólífrænu efni til fullmótaðrar lífveru verið útskýrðir á sannfærandi hátt. Einkum ber í því samhengi að nefna tilraun þeirra [[Stanley Miller]] og [[Harold Urey|Harolds Urey]]<ref name="Miller_1953">{{cite journal |last=Miller |first=Stanley L. |title=Production of Amino Acids Under Possible Primitive Earth Conditions|journal=Science |year=1953 |volume=117 |pages=528-529 |pmid=13056598}}</ref><ref name="Miller_Urey_1959">{{cite journal |last=Miller |first=Stanley L. |coauthors=Harold C. Urey |title=Organic Compound Synthesis on the Primitive Earth |journal=Science |year=1959 |volume=130 |pages=245-251 |pmid=13668555}}</ref>, en þeir sýndu fram á myndun ýmissa lífrænna efna, þar á meðal [[amínósýra]] úr ólífrænu efni við [[oxun|afoxandi]] aðstæður líkt og álitið er að hafi verið til staðar á Jörðinni í árdaga. Kenningum sem leitast við að útskýra uppruna lífsins má í grófum dráttum skipta í tvo flokka, ''eftirmyndunarkenningar'' og ''efnaskiptakenningar'' eftir því hvort er álitið hafa komið til sögunnar fyrst, eiginleikinn til eftirmyndunar (sbr. eftirmyndun erfðaefnis) eða efnaskipta<ref name="GudmEgg_2003">{{cite journal |author=Guðmundur Eggertsson |title=Uppruni lífs|journal=Náttúrufræðingurinn|volume=71 |pages=145-152 |year=2003 |pmid=}}</ref>.
Líf er talið hafa orðið til á [[jörðin]]ni fyrir hér um bil 3,5 til 4 [[milljarður|milljörðum]] ára.<ref name="GudmEgg_2003">{{cite journal |author=Guðmundur Eggertsson |title=Uppruni lífs|journal=Náttúrufræðingurinn|volume=71 |pages=145-152 |year=2003 |pmid=}}</ref><ref name="Staley_etal_2007">{{cite book | last = Staley | first = Andrew D. | coauthors = R. P. Gunsalus, S. Lory og J. J. Perry | title = Microbial Life, 2. útg. | url = https://archive.org/details/microbiallife0000unse | publisher = Sinauer Associates, Inc. | year = 2007 | isbn = 978-0-87893-685-4}}</ref> Ljóst er að allar núlifandi lífverur stunda efnaskipti sem eru í meginatriðum sömu gerðar og hafa [[erfðaefni]] á formi [[kjarnsýra|kjarnsýrunnar]] DNA. Þessi atriði og ýmis fleiri styðja þá tilgátu að allar lífverur Jarðarinnar eigi sér sameiginlegan [[Síðasti sameiginlegi forfaðir allra núlifandi lífvera|áa]]. [[Sjálfskviknun|Sjálfkviknun]] lífvera úr lífvana efni, sem um aldir var álitin útskýra tilurð lífvera, var [[Hrekjanleiki|afsönnuð]] af [[Louis Pasteur]] um miðja [[19. öld]]. Hvernig líf kviknaði á jörðinni í árdaga er enn að verulegu leyti ráðgáta, en þó hafa veigamiklir hlekkir í hinni löngu keðju atburða sem hlýtur að liggja frá ólífrænu efni til fullmótaðrar lífveru verið útskýrðir á sannfærandi hátt. Einkum ber í því samhengi að nefna tilraun þeirra [[Stanley Miller]] og [[Harold Urey|Harolds Urey]]<ref name="Miller_1953">{{cite journal |last=Miller |first=Stanley L. |title=Production of Amino Acids Under Possible Primitive Earth Conditions|journal=Science |year=1953 |volume=117 |pages=528-529 |pmid=13056598}}</ref><ref name="Miller_Urey_1959">{{cite journal |author1=Miller, Stanley L. |author2=Harold C. Urey |title=Organic Compound Synthesis on the Primitive Earth |url=https://archive.org/details/sim_journal-of-polymer-science_1959-04_36_130/page/245 |journal=Science |year=1959 |volume=130 |pages=245-251 |pmid=13668555}}</ref>, en þeir sýndu fram á myndun ýmissa lífrænna efna, þar á meðal [[amínósýra]] úr ólífrænu efni við [[oxun|afoxandi]] aðstæður líkt og álitið er að hafi verið til staðar á jörðinni í árdaga. Kenningum sem leitast við að útskýra uppruna lífsins má í grófum dráttum skipta í tvo flokka, ''eftirmyndunarkenningar'' og ''efnaskiptakenningar'' eftir því hvort er álitið hafa komið til sögunnar fyrst, eiginleikinn til eftirmyndunar (sbr. eftirmyndun erfðaefnis) eða efnaskipta<ref name="GudmEgg_2003">{{cite journal |author=Guðmundur Eggertsson |title=Uppruni lífs|journal=Náttúrufræðingurinn|volume=71 |pages=145-152 |year=2003 |pmid=}}</ref>.

== Heimildir ==
{{reflist|2}}


== Tengt efni ==
=== Útdauði ===
{{Aðalgrein|Útdauði}}
* [[Uppruni lífs]]
Útdauði er þegar tiltekin [[tegund (líffræði)|tegund]] lífvera deyr út.<ref>{{cite encyclopedia |title=Extinction&nbsp;– definition |url=http://encarta.msn.com/dictionary_1861609974/extinction.html |archive-url=https://web.archive.org/web/20090926011523/http://encarta.msn.com/dictionary_1861609974/extinction.html |archive-date=26 September 2009 |url-status=dead}}</ref> Þetta gerist þegar síðasti einstaklingurinn sem tilheyrir þeirri tegund deyr. Þar sem [[útbreiðsla (líffræði)|útbreiðsla]] lífvera getur verið mjög stór, getur verið erfitt að átta sig á því hvenær þessu stigi er náð. Oftast er það gert eftir á þegar ekki hefur orðið vart við tegundina um nokkurn tíma. Tegundir verða útdauða þegar þær geta ekki lengur lifað af vegna breytinga á [[búsvæði|búsvæðum]] eða samkeppni. Yfir 99% af öllum tegundum sem hafa lifað eru nú útdauð.<ref>{{cite web |url=http://palaeo.gly.bris.ac.uk/Palaeofiles/Triassic/extinction.htm |title=What is an extinction? |website=Late Triassic |publisher=Bristol University |access-date=27 June 2012 |url-status=dead |archive-url=https://web.archive.org/web/20120901011807/http://palaeo.gly.bris.ac.uk/palaeofiles/triassic/extinction.htm |archive-date=1 September 2012 }}</ref><ref name="Book-Biology">{{cite book |editor1=Kunin, W.E. |editor2=Gaston, Kevin |author=McKinney, Michael L. |chapter=How do rare species avoid extinction? A paleontological view |title=The Biology of Rarity: Causes and consequences of rare—common differences |chapter-url=https://books.google.com/books?id=4LHnCAAAQBAJ&pg=PA110 |date=1996 |publisher=Springer |isbn=978-0-412-63380-5 |access-date=26 May 2015 |archive-date=3 February 2023 |archive-url=https://web.archive.org/web/20230203051637/https://books.google.com/books?id=4LHnCAAAQBAJ&pg=PA110 |url-status=live }}</ref><ref name="StearnsStearns2000">{{cite book |last1=Stearns |first1=Beverly Peterson |last2=Stearns |first2=Stephen C. |title=Watching, from the Edge of Extinction |url=https://books.google.com/books?id=0BHeC-tXIB4C&q=99+percent |year=2000 |publisher=[[Yale University Press]] |isbn=978-0-300-08469-6 |page=x |access-date=30 May 2017 |archive-date=5 November 2023 |archive-url=https://web.archive.org/web/20231105190204/https://books.google.com/books?id=0BHeC-tXIB4C&q=99+percent#v=snippet&q=99%20percent&f=false |url-status=live }}</ref><ref name="NYT-20141108-MJN">{{cite news |last=Novacek |first=Michael J. |title=Prehistory's Brilliant Future |url=https://www.nytimes.com/2014/11/09/opinion/sunday/prehistorys-brilliant-future.html |date=8 November 2014 |work=[[The New York Times]] |access-date=25 December 2014 |url-status=live |archive-url=https://web.archive.org/web/20141229225657/http://www.nytimes.com/2014/11/09/opinion/sunday/prehistorys-brilliant-future.html |archive-date=29 December 2014 }}</ref> Hugsanlega hefur [[fjöldaútdauði]] tegunda á tilteknum tímaskeiðum orðið til þess að hraða þróun nýrra lífvera til að auka fjölbreytni.<ref>{{Cite journal |last=Van Valkenburgh |first=B. |author-link=Blaire Van Valkenburgh |year=1999 |title=Major patterns in the history of carnivorous mammals |journal=Annual Review of Earth and Planetary Sciences |volume=27 |pages=463–493 |doi=10.1146/annurev.earth.27.1.463 |bibcode=1999AREPS..27..463V |url=https://zenodo.org/record/890156 |access-date=29 June 2019 |archive-date=29 February 2020 |archive-url=https://web.archive.org/web/20200229201201/https://zenodo.org/record/890156 |url-status=live }}</ref>
* [[Dauði]]
* [[Líffræði]]
* [[Dýr]]
* [[Sveppur|Sveppir]]
* [[Jurt|Plöntur]]
* [[Fruma]]
* [[Stjörnulíffræði]]


== Tenglar ==
== Tilvísanir ==
{{Wikivitnun}}
{{Wikivitnun}}
{{Wiktionary|líf}}
{{Wiktionary|líf}}
{{reflist}}
* {{Vísindavefurinn|687|Er til fullnægjandi fræðileg skilgreining á lífi?}}
* {{Vísindavefurinn|49406|Hvaðan kemur lífið?}}
* {{Vísindavefurinn|168|Hvenær kviknaði líf á jörðinni og hvers vegna?}}
* {{Vísindavefurinn|4065|Af hverju er lífið til?}}
* {{Vísindavefurinn|204|Hver var fyrsta lífveran á jörðinni?}}
* {{Vísindavefurinn|7117|Er líf eftir dauðann?}}


[[Flokkur:Líffræðihugtök]]
[[Flokkur:Líf| ]]

Nýjasta útgáfa síðan 6. október 2024 kl. 12:03

Örverubreiður í kringum hver.

Líf er eiginleiki sem aðgreinir efni sem býr yfir lífrænum ferlum eins og frumuboðskiptum og sjálfbærum vexti, frá efni sem ekki býr yfir slíkum ferlum. Meðal þess sem einkennir lifandi efni er samvægi, lífrænt skipulag, efnaskipti, frumuvöxtur, aðlögun og æxlun. Allt líf fæðist og deyr.[1] Ódauðleiki er ekki til. Til eru margar heimspekilegar skilgreiningar á því hvað lífkerfi er. Líf er grundvallarhugtak í líffræði, en er þó vandmeðfarið og síður en svo auðvelt að skilgreina.[2] Sem dæmi má nefna að ekki er ljóst hvort telja skuli veirur til lífvera þar sem þær geta ekki fjölgað sér sjálfstætt utan hýsilfrumu. Líf finnst um alla jörðina: í andrúmsloftinu, vatni og jarðvegi. Lífhvolfið er myndað úr mörgum vistkerfum, en hluti af því er umhverfi sem er fjandsamlegt flestum lífverum nema jaðarlífverum.

Hægt er að rekja uppruna lífs á jörðinni 3,5 milljarða ára aftur í tímann,[3] þannig að allar lífverur eiga sér sameiginlegan forvera samkvæmt einni tilgátu.[4] Allar tegundir lífvera hafa þróast út frá þessum síðasta sameiginlega forvera.[5] Margar þeirra hafa dáið út og skilið eftir sig steingervinga. Líf hefur verið viðfangsefni rannsókna að minnsta kosti frá fornöld. Samkvæmt efnishyggju Empedóklesar var líf myndað úr fjórum frumefnum. Aristóteles setti fram hugmyndina um að allar lifandi verur hefðu sál. Hann var líka fyrstur til að reyna að flokka lífverur skipulega. Nútímaflokkunarfræði lífvera kom fram á 18. öld með tvínefnakerfi Carls von Linné.

Efnafræðilega eru lífverur myndaðar úr lífrænum sameindum sem að mestu eru gerðar úr nokkrum lykilfrumefnum. Allar lífverur hafa tvenns konar stórar sameindir: prótein og kjarnsýrur, oftast bæði deoxýríbósakjarnsýrur og ríbósakjarnsýrur. Kjarnsýrurnar geyma upplýsingar sem hver tegund þarfnast, meðal annars upplýsingar um gerð próteina. Próteinin eru svo efnafræðileg undirstaða hinna ýmsu lífrænu ferla. Undirstöðueining allra lífvera er fruman. Langflestar lífverur (til dæmis allir dreifkjörnungar) eru einfruma, en sumir heilkjörnungar mynda flóknari fjölfruma lífverur. Líf er eingöngu þekkt á jörðinni, en talið er líklegtlíf sé til á öðrum hnöttum. Vísindamenn reyna oft að herma eftir lífrænum ferlum og búa til gervilíf í rannsóknarskyni.

Skilgreining

[breyta | breyta frumkóða]

Hefðbundin skilgreining

[breyta | breyta frumkóða]

Engin ein skilgreining er til sem nær óyggjandi yfir allar lífverur en undanskilur allt lífvana efni. Almennt má þó telja þá veru lífveru sem uppfyllir öll eða að minnsta kosti flest eftirfarandi skilyrða.

  • Veran stundar efnaskipti, en í því felst að hún nærist og umbreytir efnaorku eða ljósorku í frumuhluta og önnur lífefni. Næringin eykur þannig vöxt hennar og gerir henni einnig kleift að nýta orku til annarrar starfsemi, svo sem hreyfingar og úrgangslosunar.
  • Veran vex, en í því felst að hún stundar lífsmíðandi (anabólísk) efnaskipti í ríkari mæli en niðurbrot (katabólísk efnaskipti). Vexti fylgir gjarnan að veran gengur í gegn um ákveðin þroskastig.
  • Samvægi: Veran bregst á einhvern hátt við áreiti og lagar sig að umhverfisaðstæðum.
  • Veran er fær um að æxlast, annað hvort kynlaust eða með kynæxlun (eða hvort tveggja).
  • Veran hefur erfðaefni sem getur tekið breytingum og borist milli kynslóða.

Undantekningar

[breyta | breyta frumkóða]
  • Múlasnar og önnur ófrjó dýr, þar sem þessar verur geta ekki fjölgað sér en teljast þó til lífs.
  • Hægt væri að skilgreina stjörnur eða eld sem lifandi þó svo að það sé ekki venjan.
  • Veira vex ekki, stundar engin efnaskipti og getur ekki fjölgað sér utan hýsils og er álitamál hvort sé talin til lífs eða ekki.

Líf er talið hafa orðið til á jörðinni fyrir hér um bil 3,5 til 4 milljörðum ára.[6][7] Ljóst er að allar núlifandi lífverur stunda efnaskipti sem eru í meginatriðum sömu gerðar og hafa erfðaefni á formi kjarnsýrunnar DNA. Þessi atriði og ýmis fleiri styðja þá tilgátu að allar lífverur Jarðarinnar eigi sér sameiginlegan áa. Sjálfkviknun lífvera úr lífvana efni, sem um aldir var álitin útskýra tilurð lífvera, var afsönnuð af Louis Pasteur um miðja 19. öld. Hvernig líf kviknaði á jörðinni í árdaga er enn að verulegu leyti ráðgáta, en þó hafa veigamiklir hlekkir í hinni löngu keðju atburða sem hlýtur að liggja frá ólífrænu efni til fullmótaðrar lífveru verið útskýrðir á sannfærandi hátt. Einkum ber í því samhengi að nefna tilraun þeirra Stanley Miller og Harolds Urey[8][9], en þeir sýndu fram á myndun ýmissa lífrænna efna, þar á meðal amínósýra úr ólífrænu efni við afoxandi aðstæður líkt og álitið er að hafi verið til staðar á jörðinni í árdaga. Kenningum sem leitast við að útskýra uppruna lífsins má í grófum dráttum skipta í tvo flokka, eftirmyndunarkenningar og efnaskiptakenningar eftir því hvort er álitið hafa komið til sögunnar fyrst, eiginleikinn til eftirmyndunar (sbr. eftirmyndun erfðaefnis) eða efnaskipta[6].

Útdauði er þegar tiltekin tegund lífvera deyr út.[10] Þetta gerist þegar síðasti einstaklingurinn sem tilheyrir þeirri tegund deyr. Þar sem útbreiðsla lífvera getur verið mjög stór, getur verið erfitt að átta sig á því hvenær þessu stigi er náð. Oftast er það gert eftir á þegar ekki hefur orðið vart við tegundina um nokkurn tíma. Tegundir verða útdauða þegar þær geta ekki lengur lifað af vegna breytinga á búsvæðum eða samkeppni. Yfir 99% af öllum tegundum sem hafa lifað eru nú útdauð.[11][12][13][14] Hugsanlega hefur fjöldaútdauði tegunda á tilteknum tímaskeiðum orðið til þess að hraða þróun nýrra lífvera til að auka fjölbreytni.[15]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Jón Gunnar Þorsteinsson (29.2.2008). „Er líf eftir dauðann?“. Vísindavefurinn.
  2. Guðmundur Eggertsson (24.7.2000). „Er til fullnægjandi fræðileg skilgreining á lífi?“. Vísindavefurinn.
  3. Guðmundur Eggertsson (29.2.2000). „Hvenær kviknaði líf á jörðinni og hvers vegna?“. Vísindavefurinn.
  4. Einar Árnason (9.3.2000). „Hver var fyrsta lífveran á jörðinni?“. Vísindavefurinn.
  5. Þorsteinn Vilhjálmsson (17.3.2004). „Af hverju er lífið til?“. Vísindavefurinn.
  6. 6,0 6,1 Guðmundur Eggertsson (2003). „Uppruni lífs“. Náttúrufræðingurinn. 71: 145–152.
  7. Staley, Andrew D. (2007). Microbial Life, 2. útg. Sinauer Associates, Inc. ISBN 978-0-87893-685-4.
  8. Miller, Stanley L. (1953). „Production of Amino Acids Under Possible Primitive Earth Conditions“. Science. 117: 528–529. PMID 13056598.
  9. Miller, Stanley L.; Harold C. Urey (1959). „Organic Compound Synthesis on the Primitive Earth“. Science. 130: 245–251. PMID 13668555.
  10. Extinction – definition. Afrit af upprunalegu geymt þann 26. september 2009.
  11. „What is an extinction?“. Late Triassic. Bristol University. Afrit af upprunalegu geymt þann 1. september 2012. Sótt 27. júní 2012.
  12. McKinney, Michael L. (1996). „How do rare species avoid extinction? A paleontological view“. Í Kunin, W.E.; Gaston, Kevin (ritstjórar). The Biology of Rarity: Causes and consequences of rare—common differences. Springer. ISBN 978-0-412-63380-5. Afrit af uppruna á 3. febrúar 2023. Sótt 26. maí 2015.
  13. Stearns, Beverly Peterson; Stearns, Stephen C. (2000). Watching, from the Edge of Extinction. Yale University Press. bls. x. ISBN 978-0-300-08469-6. Afrit af uppruna á 5. nóvember 2023. Sótt 30. maí 2017.
  14. Novacek, Michael J. (8. nóvember 2014). „Prehistory's Brilliant Future“. The New York Times. Afrit af uppruna á 29. desember 2014. Sótt 25. desember 2014.
  15. Van Valkenburgh, B. (1999). „Major patterns in the history of carnivorous mammals“. Annual Review of Earth and Planetary Sciences. 27: 463–493. Bibcode:1999AREPS..27..463V. doi:10.1146/annurev.earth.27.1.463. Afrit af uppruna á 29. febrúar 2020. Sótt 29. júní 2019.