Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Leiðbeiningar
Gestur

Ef gestgjafi þinn fellir niður bókun

Gestgjafar gætu stundum þurft að fella niður bókun, en það er aðeins í undantekningartilvikum. Við vitum hvað það getur haft mikil áhrif á ferðaáætlanir. Engar áhyggjur, ef gestgjafi þinn afbókar fyrir innritun færð þú endurgreitt að fullu.

Endurgreiðsla til þín ef gestgjafi afbókar

Ef gestgjafi þinn afbókar fyrir innritun og þú ákveður að endurbóka ekki, færðu fulla endurgreiðslu sem felur einnig í sér þjónustugjöld.

Þú gætir átt rétt á bókunarinneign frá Airbnb sem þú getur notað til að ganga frá annarri bókun þegar í stað. Notir þú hana ekki innan þriggja sólarhringa munt þú sjálfkrafa fá fulla endurgreiðslu í staðinn. Ef þú átt ekki rétt á bókunarinneign verður þér endurgreitt þegar í stað. Frekari upplýsingar um hvað felst í bókunarinneignum.

Endurgreiðslan verður millifærð á sama greiðslumáta og þú notaðir við bókun. Það ræðst af banka þínum eða fjármálastofnun hve langur tími líður þar til fjárhæðin berst þér. Frekari upplýsingar um algengan úrvinnslutíma.

Aðstoð við endurbókun ef gestgjafi afbókar

AirCover fyrir gesti fylgir með hverri bókun á Airbnb til að tryggja að gestir sem lenda í vandræðum með bókun sína fái aðstoð. Ef gestgjafi þinn afbókar aðstoðum við þig við að endurbóka sambærilega gistiaðstöðu með tilliti til staðsetningar, þæginda, framboðs og verðs.

Hvernig við látum þig vita ef gestgjafinn afbókar

Þegar afbókun á sér stað færðu tölvupóst með öllum upplýsingum, þar á meðal upplýsingum um endurgreiðslu.

Ef gestgjafi biður þig um að afbóka

Ekki hætta við bókun fyrir gestgjafann ef hann lætur þig vita að hann geti ekki lengur tekið við þér. Sendu þess í stað skilaboð og biddu viðkomandi um að fella bókunina niður. Þannig átt þú rétt á því að fá endurgreitt að fullu.

Var þessi grein gagnleg?

Greinar um tengt efni

  • Gestur

    Ef gestgjafi biður þig um að afbóka

    Ekki afbóka fyrir gestgjafa sem getur ekki tekið á móti þér. Óskaðu frekar eftir afbókunarbeiðni viðkomandi svo að þú fáir bestu mögulegu en…
  • Hvernig afbókanir virka

    Stundum geta aðstæður orðið til þess að þú þurfir að afbóka. Svona afbókar þú svo að allt gangi hnökralaust fyrir sig.
  • Gestur

    AirCover fyrir gesti

    AirCover fyrir gesti fylgir með hverri bókun. Ef alvarlegt vandamál skyldi koma upp í skráðri eign á Airbnb og viðkomandi gestgjafi getur ek…
Fáðu aðstoð í tengslum við bókanir, aðganginn þinn og fleira.
Innskráning eða nýskráning