Fara í innihald

The Pirate Bay

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

The Pirate Bay er sænsk torrent-síða sem var stofnuð árið 2003 af Piratbyrån en síðan hefur verið rekin sjálfstætt síðan 2004. The Pirate Bay kallaði sig „stærstu BitTorrent-síðu heims“[1] og taldist 123. vinsælasta vefsíða heims samkvæmt mælingum Alexa Internet árið 2008.[2]

31. mars 2006 leitaði lögreglan í Stokkhólmi í húsnæði félagsins og gerði vefþjóna upptæka en það olli því að síðan virkaði ekki í þrjá daga.[3] Fyrirtækið hefur nokkrum sinnum komið fyrir dómstóla vegna gruns um brot á höfundaréttalögum og til þess að sækja eigin mál. 15. nóvember 2008 tilkynnti The Pirate Bay að vefsíðan hefði alls 25 milljónir deilenda.[4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Pfanner, Eric (31. janúar 2008). „Swedes charge 4 in case involving copyright infringement of music and films“. International Herald Tribune. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. febrúar 2008. Sótt 22. nóvember 2008.
  2. „Thepiratebay.org - The Pirate Bay“. Alexa Internet. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. apríl 2012. Sótt 1. október 2008.
  3. „Two years and still going“. The Pirate Bay. 31. maí 2008. Sótt 29. september 2008.
  4. „25 million!“. thepiratebay.org. 15. nóvember 2008.
  Þessi tölvunarfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.