Hnútur (mælieining)
Útlit
Hnútur er mælieining fyrir hraða, skammstöfuð með kn eða kt, einkum notuð í sjómennsku og flugi. Hnútur er ekki SI-mælieining. Einn hnútur er skilgreindur sem hraðinn ein sjómíla á klukkustund, sem er 1,852 km/klst eða 0,514 m/s.