Fara í innihald

Lysytsjansk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. maí 2024 kl. 02:52 eftir Mtarch11 (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. maí 2024 kl. 02:52 eftir Mtarch11 (spjall | framlög) (Tók aftur breytingu frá Kadaj825 (spjall), til baka í síðustu útgáfu frá Cinquantecinq)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Lysytsjansk.

Lysytsjansk (úkraínska: Лисича́нськ) er borg í Sjeverodonetsk-sýslu í Lúhansk oblast í austur-Úkraínu. Íbúar voru um 95.000 árið 2021. Borgin er við Donetsfljót um 115 km frá borginni Lúhansk. Gegnt Lysytsjansk, hinum megin við fljótið, er borgin Sjeverodonetsk.

Eftir að Rússar náðu Sjeverodonetsk í lok júní 2022 var íbúum Lysytsjansk gert að flýja. Rússar náðu borginni á sitt vald 3. júlí.