Fara í innihald

No Class

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
No Class
UppruniFáni ÍslandsÍsland
Ár2007 – í dag
StefnurElectro house, Dubstep, Minimal
ÚtgáfufyrirtækiNo Class
MeðlimirJón Reginbald Ívarsson
Ómar Egill Ragnarsson
Vefsíðahttp://www.facebook.com/officialnoclass

No Class er íslensk hljómsveit, stofnuð árið 2007, sem spilar electro-house með minimal og dubstep ívafi. Hún hefur komið fram á íslensku Northernwave[1] kvikmyndahátíðinni og tók þátt í Músíktilraunum árið 2011[2]. Einnig hefur hljómsveitin spilað á fimmtudagsforleik Hins húsins[3], Bakkus, Sódóma og Grapevine Grassroots Concerto Electronico Opus 27[4].

Hljómsveitina skipa:

  • Jón Reginbald Ívarsson
  • Ómar Egill Ragnarsson

Hljómsveitin var stofnuð árið 2007 í Árbæjarskóla[5] eftir að kennari þar efndi til lagakeppni þar sem nemendur fengu það verkefni að semja lag fyrir hugtakabanka í samfélagsfræði. Eftir það héldu þeir áfram að semja lög og byrjaði ferill þeirra fyrir alvöru veturinn 2011 þegar þeir spiluðu á NorthernWave kvikmyndahátíðinni við mikið lof gesta.

Útgefið efni

[breyta | breyta frumkóða]

Demoútgáfu er að finna á heimasíðu gogoyoko hér. Geymt 19 desember 2008 í Wayback Machine

No Class