Fara í innihald

Forsetakjör á Íslandi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Forsetakosningar)

Forsetakjör á Íslandi fer alla jafna fram á fjögurra ára fresti. Kosningarétt hafa allir íslenskir ríkisborgarar yfir 18 ára aldri sem eiga lögheimili á Íslandi. Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis halda kosningarétti sínum í 16 ár frá brottflutningi lögheimils frá Íslandi en að þeim tíma liðnum geta þeir sótt um að vera á kjörskrá en sú skráning gildir til fjögurra ára í senn.

Forsetakjör hefur farið fram í 22 skipti en í 11 skipti hefur sitjandi forseti ekki fengið mótframboð og því verið sjálfkjörinn án atkvæðagreiðslu. Í fjögur skipti hefur sitjandi forseti fengið mótframboð en ávallt borið sigur úr býtum.

Listi yfir forsetakjör

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Dagsetning Kjörskrá Kjörsókn Framboð Sigurvegari Fylgi
sigurvegara
Úrslit
1944 17. júní Kjörinn af Alþingi Sveinn Björnsson 30 af 52 þingmönnum
1945 1 Sveinn Björnsson Sjálfkjörinn
1949 1 Sveinn Björnsson Sjálfkjörinn
1952 29. júní 85877 82,0% 3 Ásgeir Ásgeirsson 48,3%
1956 1 Ásgeir Ásgeirsson Sjálfkjörinn
1960 1 Ásgeir Ásgeirsson Sjálfkjörinn
1964 1 Ásgeir Ásgeirsson Sjálfkjörinn
1968 30. júní 112737 92,2% 2 Kristján Eldjárn 65,6%
1972 1 Kristján Eldjárn Sjálfkjörinn
1976 1 Kristján Eldjárn Sjálfkjörinn
1980 29. júní 143196 90,5% 4 Vigdís Finnbogadóttir 33,8%
1984 1 Vigdís Finnbogadóttir Sjálfkjörin
1988 26. júní 173829 72,8% 2 Vigdís Finnbogadóttir 94,6%
1992 1 Vigdís Finnbogadóttir Sjálfkjörin
1996 19. júní 194705 85,9% 4 Ólafur Ragnar Grímsson 41,4%
2000 1 Ólafur Ragnar Grímsson Sjálfkjörinn
2004 26. júní 213553 62,9% 3 Ólafur Ragnar Grímsson 85,6%
2008 1 Ólafur Ragnar Grímsson Sjálfkjörinn
2012 30. júní 235743 69,3& 6 Ólafur Ragnar Grímsson 52,8%
2016 25. júní 244896 75,7% 9 Guðni Th. Jóhannesson 39,0%
2020 27. júní 252152 67,0% 2 Guðni Th. Jóhannesson 92,2%
2024 1. júní 266935 80,8% 12 Halla Tómasdóttir 34,1%
  • Hagstofa Íslands
  • „Hversu oft er kosið um forseta?“. Vísindavefurinn.
  • Kosningasaga: Forsetakosningar